Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009
Trommur
24.6.2009 | 14:48
Stjórnvöldum ekki sjálfrátt
23.6.2009 | 13:35
Magnús Thorodssen hæstaréttarlögmaður og og fyrrverandi forseti hæstarétts, Björg Thorarensen forseti Lagadeildar HÍ og Atli Gíslason Hæstaréttarlögmaður með meiru, Stefán Már Stefánsson prófessor við HÍ og fleiri lögmenn bæði hérlendis og erlendis. Þá hlustaði ég á sérfræðing í alþjóðalögum í gær sem sagði að lögfræðilega væri málið mjög skýrt, rétturinn væri okkar megin.
Í framhaldi get ég ekki annað sagt en að ofangreindum aðilum, Forsætisráðherra og Fjármálaráðherra, sé ekki sjálfrátt í orði sínu og æði. Pólitísk lausn Samfylkingarinnar er algerlega óásættanleg enda gaf þetta fólk sér enga samningsstöðu í þessum málum.
"Sigurður Líndal lagaprófessor er sammála því sem Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, sagði í Morgunblaðsgrein í gær; að fjalla ætti um Icesave-málið fyrir dómstólum. „Mér finnst óskiljanlegt að ekki skuli hægt að leggja málið fyrir dóm,“ sagði Sigurður í fréttum Stöðvar 2 nú í hádeginu.
„Mér finnst að við hljótum að eiga rétt á því, það hlýtur að vera hægt að koma á fót slíkum dómstóli og menn ættu að geta sæst á það. Ég segi fyrir mig, ef ég á að svara hreinskilnislega; ég vil frekar tapa málinu þannig að réttarstaðan væri skýr en að vera í þessari óvissu og láta gagnaðilana einhliða ákvarða skyldur okkur,“ sagði Sigurður í samtali við Stöð 2, og bætti við: „Mér finnst óskiljanlegt að ekki skuli vera hægt að leggja þetta mál fyrir dóm.“ Aðalatriðið sé að fá réttarstöðuna á hreint."
|
Icesave málið fari fyrir dóm |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
samningarnir úti
22.6.2009 | 15:38
Þessir samningar eru úti og ekki nóg með það, ríkisstjórnin er fallin. Ég spyr eins og fréttakonan; Hvað vakir fyrir ríkisstjórninni að gera svona samninga?
Hér er búið að sóa dýrmætum tíma og tækifærum í algjört rugl og volæði.
|
Icesave kostar minnst 300 milljarða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Í ruslið
22.6.2009 | 10:50
Nú er svo komið að ég er löngu hættur að lesa neitt um menningu í blöðunum. Hvort sem það er gagnrýni eða einhverskonar fjálgleg naflaskoðun blaðamanns eða menningarrýnis um tónlist, leiklist, myndlist eða allt þetta drasl.
Ég nenni ekki einu sinni að lesa auglýsingar eða tilkynningar um listviðburði, varðar ekkert um þetta kjaftæði allt saman. Fátt er hlægilegra en einhverskonar Bandalag Íslenskra Listamanna eða félög ýmiskonar þar sem einhverskonar listamenn koma sér saman í svona listamannahrúgu.
Þá halda þeir yfirleitt að ef þeir eru nógu margir í hrúgunni, þá hljóti þeir að vera þeim mun meiri listamenn. Síðan verðlauna þeir hvern annan með alls kyns fíflalegum verðlaunum og útnefna hvern annan listamann ársins og eitthvað álíka og í staðin sleikja þeir hvern annan upp og tala hver í kapp við annann um ágæti hvers annars. Íslensk poppmenning blómstrar í allri vitleysunni.
Þetta er náttúrulega alveg frábært. Síðan er um að gera að koma öllu þessu innundir hjá hinu opinbera á láta menn á listamannalaun, gefa út fleiri titla og styrki og verðlaun.
Nú er málið að verða flóknara, kannski eins og þetta var í Ungverjalandi þar sem erlendir listamenn áttu í mestu vandræðum með að stjórna sinfóníuhljómsveitinni þeirra því þeir vitnuðu bara í verkalýðsfélag tónlistarmanna í annarri hverri setningu. Þeir ruku í kaffi í miðju rennsli af því það stóð í samningum og hótuðu hljómsveitarstjóranum eldi og brennisteini ef þeir fengju ekki sitt lögboðna kaffibreik.
Nú er Ferðamálaráð og Bandalag Listamanna að rífast um hvað sé list?
Sjálfur er ég hættur að kalla mig listamann enda þykir mér sá titill vera löngu orðin ruslakista. Það er alveg merkilegt á meðan þjóðfélagið er á heljarþröm þá skuli þessir svokölluðu "listamenn" vera að rífast á opinberum vettvangi um hver þeirra eigi að fá viðurnefnið Borgarlistamaður.
Hvern langar að vera Borgarlistamaður? Kræst, það er svona eins og að fá bekken í afmælisgjöf.
Jón Kaldal 2. þáttur af Dallas
20.6.2009 | 05:42
Í gær skrifar Jón Kaldal aftur og nú um viðbrögð bloggheima við grein hans um Evu Joly, þann 17. júní, sem ég fjallaði um samdægurs.
Einhvernvegin virðist Jóni vera ómögulegt að skilja, að það er ekki við hæfi að hann skrifi gegn rannsóknaraðilum á vegum sérstaks saksóknara, meðan að aðaleigendur Fréttablaðsins sem hann ritstýrir, eru Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson sem sæta rannsókn vegna hrunsins ásamt sínum samstarfsmönnum.
Fólki er einfaldlega misboðið svona háttalag.
Jón segir nú eftirfarandi;
"Í þeim viðbrögðum kemur fram á afgerandi hátt sú hugmynd að einungis sé leyfilegt að hafa eina skoðun á Evu Joly, og eina skoðun á því hvort framlag hennar við rannsókn bankahrunsins hafi verið heppilegt.
En dagar einnar skoðunar eru liðnir. Það eru engin mál til lengur sem ekki má ræða. Og enginn einstaklingur er heilagur, sem betur fer."
feitletrunin er frá mér þar sem mér blöskrar viðbjóðurinn.
Eru "dagar einnar skoðunar liðnir", ekki sýnist mér það á Jóni. Hann heldur áfram;
"Stóryrtum æsingamönnum sem gera sig breiða á bloggsíðum, flestir í skjóli nafnleysis, tekst ekki að stöðva gagnrýna umræðu, eins og virðist vera þeirra heitasta ósk þessa dagana."
Ég myndi kalla þennan texta ritstjórans alhæfingar og er það áfellisdómur í nútímasamfélagi. Ég er t.d. ekki "stóryrtur æsingamaður" og tjái mig en síður "í skjóli nafnleysis". Einnig þekki ég "gagnrýna umræðu" þegar ég verð vitni að henni.
En ég kannast ágætlega við fyrirbærið; skipulögð aðför að einstaklingi/aðila og bera skrif Jóns, Sigurðar G. og Ólafs Arnarssonar, öll merki skipulagðrar aðfarar að Evu Joly. ákæruvaldinu og yfirvöldum dómsmála í landinu.
Þið stöðvið ekki nýja tíma ra ra ra, vandamálið er bara að Jón Kaldal er enginn talsmaður nýrra tíma heldur er þessi söngur hans um ólíkar skoðanir fyrst og fremst rithöfundurinn að reyna að stroka út sína eigin vonlausu röksemdafærslu og aðild sína að þessari aðgerð. Það er þó of seint, við erum búin að lesa bullið, það er í árásarformi.
Jón hefur ekki fært ein einustu rök fyrir "gagnrýni sinni á Joly, ekki snifsi. Það eina sem hann hefur til málanna að leggja, er að við eigum að efast um hæfni hennar að öllu leyti, efinn er nefnilega hollur, þótt hann sé tilefnislaus.
En þetta bendir bara ekki til þess að tilgangur Jóns Kaldal sé með eðlilega rökræðumenningu að leiðarljósi, heldur talar hann nú, eins og hann gerði í leiðaranum á sjálfan þjóðhátíðardaginn, við landsmenn sem hann augsýnilega álítur nautheimska, varla læsa og auðtrúandi öllu sem úr Bónus kemur, eins og hvern annan heimskan lýð. Tilgangurinn helgar meðalið, að losna við Evu Joly.
"Dagar einnar skoðunar" eru svo sannarlega liðnir, en ég vil líka benda Jóni á að næst þegar hann leggur í fjallgöngu sem þessa, vertu þá með eitthvað efni í "gagnrýni",rökstyddu síðan mál þitt, það er trendið í dag góði minn.
Ekki dylgjur.
Landráðaplagg
18.6.2009 | 17:51
"Mig undrar þessi málflutningur þingmanna að það sé verið að hræða þjóðina með þessum hætti vegna þess að þetta er ekki rétt" .sagði Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra í svari sínu til Péturs Blöndal á þingfundi í dag.
"Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði á Alþingi að enginn hafi getað sýnt fram á það með neinum rökum, að ákvæði Icesave-samninganna stofni í hættu stöðu Íslendinga, eignum og auðlindum innanlands."
Ég horfði á fréttir, las gjaldfellingarákvæðin í samningnum milli Hollands og Íslands, horfði á Kastljós á þá Indriða H. Þorláksson og Eirík Svavarsson lögmann Indefence ræða um málið. Ég hlustaði á Magnús Thorodssen hæstarréttarlögmann og álit hans, ég hlustaði á Þór Saarí, Sigmund Davíð og Bjarna Benediktsson.
Áður hef ég kynnt mér álit Bjargar Thorarensen og Atla Gíslasonar og fleiri lögmanna bæði hérlendra og erlendra.
Í framhaldi get ég ekki annað sagt en að ofangreindum aðilum, Forsætisráðherra og Fjármálaráðherra, sé ekki sjálfrátt í orði sínu og æði.
Það er engin önnur niðurstaða sem ég kemst að, þessir aðilar eru ekki með réttu ráði.
Hér er alvarleg staða á ferðinni og mun alvarlegri en mig hefði órað fyrir. Undirskrift þýðir landráð, afbrot gegn hagsmunum þjóðarinnar.
Þessir samningar verða felldir.
|
Icesave-samningar birtir í dag |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Náhirð Íslensks réttarkerfis
17.6.2009 | 13:23
Nú hefur Fréttablaðið valið að fara fyrir hinni ógeðfelldu fylkingu manna sem berjast gegn umbótum í Íslenska réttarkerfinu. Mannabreytingar og breytingar á réttarskipulagi eru eitur í beinum hins maðkétna réttarkerfis og þeirra tvífættu líkþorna sem vörð um það standa.
Jón Kaldal ritstjóri Fréttablaðsins sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar ætlar augsýnilega ekki að taka því sem að höndum ber eða sætta sig við hið óumflýjanlega, nefnilega það að hann sjálfur er gersamlega vanhæfur til að tjá sig um réttarfarið í landinu ásamt yfirmanni sínum og eiganda, Jóni Ásgeiri.
Jón Kaldal segir; "Dómsmálaráðherra kýs hins vegar að hafa að engu ráðgjöf Joly um að víkja beri Valtý Sigurðssyni ríkissaksóknara frá, enda opinberaði sú ráðgjöf mikið þekkingarleysi ráðgjafans á íslensku réttarfari. Og það er auðvitað hið vandræðalegasta mál sem ekki er hægt að láta eins og hafi ekki átt sér stað."
Ég hlýt að svara því til en fátt sé vandræðalegra en þessi yfirlýsing blaðamannsins. Ég veit ekki hver er meint lagakunnátta Jóns Kaldal, en ekki fer mikið fyrir henni þarna. "Þekkingarleysi á Íslensku réttarfari" Mér sýnist Jón Kaldal sjálfur hafa litla þekkingu á málinu.
Síðan segir Jón Kaldal; "Traustið á íslensku embættismannakerfi er laskað eftir hrunið. Utanaðkomandi sérfræðingi í ráðgjafahlutverki hlýtur ekki síst að vera ætlað það hlutverk að auka tiltrú og slá á þá tortryggni sem teygir sig út í flest horn."
Hver sagði Jóni Kaldal, Evu Joly, "vera ætlað það hlutverk að auka tiltrú og slá á þá tortryggni sem teygir sig út í flest horn." ?
Er þetta smákrakki í rassvasa Jóns Ásgeirs?
Hvaða bull er þetta í manninum? Það er bara einfaldlega ekki hennar hlutverk að vera með eitthvað P.R. og hlýt ég að spyrja mig hvert sé hlutverk Jóns Kaldal ritstjóra Fréttablaðsins?
"Traustið á íslensku embættismannakerfi" er vissulega "laskað", með réttu! Á að fara að telja fólki trú um eitthvað annað en að menn séu búnir að drulla á sig?
Jón Kaldal ætti kannski að fá Sollu og Geir Haarde, jafnvel Jón Sigurðsson úr FME og helsta promoter Icesave til þess að markaðsetja þetta embættismannakerfi upp á nýtt?
Aldrei hef ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur fyrr en nú og það á Þjóðhátíðardaginn 17. júní, ekki fyrir hönd þjóðarinnar heldur fyrir þessa menn sem virðast einbeittir í sínum augljósa ásetningi að koma í veg fyrir umbætur hér.
Nú, Jón Kaldal, Ólafur Arnarsson, Sigurður G. Guðjónsson, skammist þið ykkar allir þrír. Það verður seint hægt að skafa af mönnum launhelgaða aðför þeirra að Evu Joly sem er sérhönnuð í þeim tilgangi að vernda þjófa og glæpamenn sem brotið hafa með svívirðilegum hætti gegn Íslensku þjóðinni.
þetta er náhirð hinna vitfirrtu.
http://www.visir.is/article/20090617/SKODANIR/700024652
Þegar jörðin er flöt og pizzur eru frá Svíþjóð
16.6.2009 | 21:46
Ég verð að viðurkenna að mér hefur alla tíð fundist Sigurður G. Guðjónsson skemmtilegur maður og þótt ég bauni yfir hann þessa dagana þá þýðir það ekki að það hafi breyst. Í hvert skipti sem hann er í sjónvarpi sem dæmi, þá sest ég niður með minn kaffibolla og hlusta af mikilli ánægju. Af hverju? Nú, það veit ég ekki, maðurinn er skemmtilegur. Bráðgáfað kvikindi og harður sem stál, ekki hræddur við neinn. Ég fíla manninn.
Nú skrifar Sigurður G. stutta grein (mjög stutta) í Pressunni þar sem hann fárast yfir "nafnlausri umræðu hjarðar bloggraggeita" og þótt ég sé reyndar ósammála Hæstaréttarlögmanninum varðandi það hvort Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari eigi að víkja úr embætti, þá verð ég að vera sammála megininntakinu hjá honum, nefnilega varðandi nafnlausa bloggara.
Ég skal viðurkenna að þeir bloggarar sem ég les eru tiltölulega rólegt og yfirvegað fólk sem færir rök fyrir máli sínu og hef ég því ekki séð þau blogg sem Sigurður G. vísar í, svo ég noti hans orð "Hjörðin gengur jafnvel svo langt að heita andmælendum sínum limlestingum og jafnvel drápi."
Ég er þó meðvitaður um þann undirlægjuhátt og ræfildóm sem viðgengst í skjóli nafnleysis, hef fengið að kenna á honum sjálfur oft og mörgum sinum. Ég er á þeirri skoðun að það eigi að, JÁ, það að banna nafnlaust blogg með öllu.
Ef að fólk treystir sér ekki til að koma fram undir nafni, með mynd, með stutta lýsingu á sínu starfi sem dæmi, þá á það einfaldlega ekki fyrir slíkum einstaklingum að liggja að taka þátt í neinum þjóðfélagsumræðum.
Banna þennan óþrifnað!
En það breytir ekki því að Valtýr á að víkja og dugir það engan vegin til, að hann segi sig frá þeim málum er varða sérstakt ríkissaksóknaraembætti, þar sem að Valtýr er innmúraður í kerfið og klíkuna eins fast og hugsast getur, hann er með öðrum orðum valdamikill maður.
Það breytir ekki því að ég veit ekki til þess að neinn hafi efast um ágæti Valtýs og af hverju ætli menn skuli halda þeirri spurningu á lofti?
Kannski Sigurður G. Guðjónsson ætti fyrst og fremst að bíða af sér þann byl sem yfir hann sjálfan gengur eftir briljant útfærslu hans á lífeyrissjóði Sigurjóns og Sigurjóns, en þetta er svo sem allt saman ágætis útúrsnúningstækni, svona eins konar Monty Pythonískt "may we have your liver" dæmi.
Landráð
16.6.2009 | 19:35
Það er ekkert annað hægt að segja um þessi vinnubrögð. Ef ekki á að láta alla þingmenn fá samninginn í hendur og þeim leyft að fjalla efnislega um hann á opinberum vettvangi, þá eru hér landráð á ferðinni.
Þá er unnið gegn hagsmunum ríkisins og gegn hagsmunum almennings með samningi sem þolir ekki dagsins ljós.
|
Enn leynd yfir Icesave-samningi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
ekki með viti
15.6.2009 | 20:25
Það kemur ekki til greina veita þessu máli einhverja þinglega meðferð öðruvísi en að þingheimur fái öll gögn málsins í hendur.
Annars virðist Álfheiður gefa sér það að þessir samningar verði samþykktir í þinginu. Ég hef fulla trú á því að þeir verði felldir.
Síðan er hægt er að færa rök fyrir því að hér sé um 100% ríkisábyrgð að ræða og fer Álfheiður því fullfrjálslega með staðreyndir í því efni.
Er ekki möguleiki að fjölmiðlar ræði þessi mál við þá þingmenn sem hafa allavega lágmarksvit á því sem þeir eru að fjalla um?
|
Ekki ríkisábyrgð á leynisamning |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


